28. nóvember 2006 klukkan 17:48
Það styttist í jólin....í rauninni eru bara þrjár helgar til jóla því aðfangadagur er á sunnudegi, pælið í því! Ég er búin að plana eitthvað allar þessar helgar, jamm það er jólahlaðborð næsta laugardag (2.des) í Fossatúni, laufabrauðsgerð hina helgina norður í Skagafirði, og annað hvort 16. eða 17. förum við í Skorradalinn að höggva okkur jólatré. Jeminn eini, manni fallast bara hendur. Ætla að drífa mig í að græja jólakortin í vikunni þannig að ég geti byrjað að skrifa á þau um helgina. Eins gott að við erum búin að kaupa jólagjafirnar! Nú verð ég að fara að setja í alvöru jólagír, finna seríur og svoleiðis....ætla að njóta aðventunnar í botn, kem kannski með seríur í vinnuna á morgun 
Vigtun í kvöld, það verður fróðlegt að sjá hvað kemur út úr því
Vigtun í kvöld, það verður fróðlegt að sjá hvað kemur út úr því
http://www.frokenin.blogspot.com
Fröken UB
Já, tíminn þýtur áfram. Er einmitt byruð að kaupa jólagjafirnar. Kannski er það af því að ég er ekki mikið fyrir að fara í pakkaðar verslunarmiðstöðvar. Betra að gera þetta í ró og næði:)
#1
28. nóvember 2006 klukkan 20:27
Guðrún Kristín
Það er aldeilis að mín er komin á jólasprett.
Gaman að lesa hvað stemningin er góð.
Kveðja að norðan.
P.s Við Inga Dóra erum kollegar.
Hún er frábær ;)
Gaman að lesa hvað stemningin er góð.
Kveðja að norðan.
P.s Við Inga Dóra erum kollegar.
Hún er frábær ;)
#2
29. nóvember 2006 klukkan 14:43