Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

hopp og hí og trallala

24. nóvember 2006 klukkan 15:14
Fór í þolfimi í gær, það var ágætt.....svona fyrir utan þessi spor sem ég ætla bara ekki að ná að læra, hopp og hí og trallala og  hliðar saman hliðar, snúa í hring, klapp, klapp, snúa í hring, hliðar saman hliðar, trallalla og klapp, klapp!!!! Ekki alveg að gera sig. Sakna þess að fara ekki í alvöru púl (ekki það að þetta hafi ekki verið púl!!) EN það stendur til bóta, ætla í spinning í fyrramálið hjá Gunnu og Erlu í Borgarnesi, tveggja tíma púl og pottur á eftir.

Edda systir Hauks kom í gær og gisti í nótt, hún var að fara til Reykjavíkur í verslunarleiðangur. Ég ætla að taka mér frí í vinnunni eftir hádegið í dag en við Oddný Steina ætlum að fara til Elínar í Mosfellsdal, höfum ekkert farið til hennar síðan sorgin bankaði að dyrum þar á bæ.
Við hjónin erum að fara í matarklúbb í kvöld hjá Palla og Ingu Dóru, þar verður boðið upp á danskan julefrokost, ég ætla að hafa með mér sveppapate og grænmeti og smakka bara á kræsingunum, það á sko ekki að missa sig Glottandi
Veit ekki hvað ég blogga mikið um helgina en ég hef verið að gæla við að fara á jólamarkað í Gallerí Álfhól að
Bjarteyjarsandi í Hvalfirði og síðan ætla ég auðvitað að standa mig 100% í mataræðinu.

Eigið góða helgi Koss
Nóg að gera hjá þér :))) góða skemmtun.
#1
25. nóvember 2006 klukkan 07:07
Góða skemmtun!!!!
#2
26. nóvember 2006 klukkan 06:33
Mikið að gera hjá þér í gleði og djammi.
Njóttu þess.
Eru margar Ingu Dórur á þínu svæði?
Þekki nefnilega eina þarna.....
#3
27. nóvember 2006 klukkan 16:21

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.