Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Klúður

23. nóvember 2006 klukkan 18:15
Já, já.....ég mætti mjög snemma í vinnuna í morgun og ætlaði að skrásetja ýmislegt sem mér hafði dottið í hug og ætlaði að vera löngu búin að blogga kl átta en nei, nei bloggið ekki inni! Alltaf svona þegar ég ætla að vera sniðug, arg!
Það var mikið fart á okkur í gær, ég fór suður eftir hádegið en tilefnið var þríþætt, Þórður Logi fór til læknis, bekkurinn hans Stefáns Snæs fór í keilu og bíó og Haukur þurfti að snúast eitthvað fyrir vinnuna. Þetta gekk bara allt saman vel en ég var frekar þreytt þegar ég kom heim rétt fyrir níu og lá bara í sófanum og úðaði í mig mandarínum, mataræðið fór svona fyrir ofan garð og neðan í ferðinni en dagurinn leit nokkurnveginn svona út:
Morgunmatur: brauð, smyrja, ostur, 2 mandarínur.
Hádegismatur: brauð, smyrja, egg, grænmeti.
Það sem eftir var af deginum: Popp, 1/2 líter diet kók, 4 mandarínur og kaffi!!!!!!!!!! Arg, klúður ég veit algjört klúður!!!
Er að fara í Borgarnes núna og síðan út í sveit í eina heimsókn eftir hádegið, síðan er það aerobik klukkan fimm og afslöppun heima í kvöld.
ummmm mandarínur.....nammi nammmmmm...!
En ég ætla að græja skyrturnar og athuga hvernig staðan er á sparibuxunum hjá Brynjari er með einar síðan jólin 2003 sem eru orðnar of stuttar...ljósar flauel...!!!
Gangi þér annars vel snúllan mín.
Knús og kossar, þín litla systir.
#1
23. nóvember 2006 klukkan 21:16

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.