keila og mandarínur
Jæja, þá er miðvikudagurinn kominn, sonur minn er búinn að bíða lengi eftir þessum degi. Það er nefnilega þannig að bekkurinn ásamt foreldrum og kennara er að fara til höfuðborgarinnar í keilu og bíó, svaka stuð. Það hitti þannig á að litli stubbur á tíma hjá lækni í bænum seinnipartinn þannig að þetta verður notadrjúg ferð!
Ég fékk í fyrsta skipti á þessum vetri almennilegar mandarínur í gær, þær voru keyptar í Samkaup, mikið varð ég nú glöð.....og þá sjáið þið að það þarf ekki mikið til að gleðja mitt litla hjarta ![]()
Það gengur allt vel í mataræðinu, mér til gamans þá steig ég á vigtina í morgun á Evuklæðunum einum saman....mikið varð ég nú glöð en þetta er víst ekki marktækt miðað við hvaða tíma dagsins ddv vigtanirnar eru. Vel á minnst, það var ekki vigtun í gær en hún verður næsta þriðjudag (28.nóv) og þarnæsta (5.des) en þá verður þessu lokið fyrir áramót
EN þá tökum við okkur saman og verðum með okkar eigin vigtanir þar til næsta námskeið byrjar....ekki spurning ![]()
Hélt áfram í jólasveinasaum í gær þegar stubburinn var sofnaður, mikið er þetta gaman. Núna þarf maður að fara að kaupa jólakortin....hhmm ja eða búa þau til, hugmyndir óskast! Ég hef prófað að nýta gömul kort og klippt þau út og sett gervisnjó og svoleiðis, síðan hef ég gert pastelmyndir og límt á kort og vatnslitamyndir og allskonar eitthvað sem ég lærði á jólakortanámskeiði fyrir tveimur árum í Garðheimum......já og svona mætti lengi telja......
Nóg í bili!
Knús knús
Við Ellý ætlum að reyna að hittast á Skýjaborg einhverntíma og jólakortast...þér er velkomið að slást í hópinn...eða vera með (miðað við slagsmálakommentið á minni síðu! ;) ). Þá get ég líka sýnt þér þetta og reddað þér því sem til þarf ef þú átt það ekki... djöst lett mí nó...
Úff...þetta var langt komment...
Ég finn ekki fyrir honum.
Góða ferð í bæinn !!