Bráðum koma blessuð jólin
Gestur númer 1000, kvitta takk!
Þegar nálgast fer í aðventu og jól þá hef ég verið að fá spurningar varðandi mataræðið á hátíðunum. Þær hljóma eitthvað á þessa leið: "ætlar þú að svelta þig um jólin?" "hva á bara ekki að borða neitt konfekt?" hvernig getur þú sleppt jólasmákökunum?" .....og svona gæti ég haldið áfram, tek það þó fram að ekki nærri því allar spurningarnar eru svona neikvæðar. Svarið sem ég hef gefið fólki er þetta: Ég ætla ekki að ákveða að ég ætli að leifa mér eitt eða neitt, svo ég taki eitt dæmi...ég ákveð ekki að ég ætli að leifa mér að fá mér tvo mola af jólakonfekti á aðfangadagskvöld, heldur sér maður bara til og ég "díla" við það (ísl. tek á því) þá NB ef löngunin kemur yfir mig. Ég geri hins vegar eplaköku sem ég get haft sykurlausa og í stað rjóma verður það sýrður rjómi, laufabrauðið borða ég í staðin fyrir venjulegt brauð og kjötið og meðlætið það er allt í góðu með það....!
Niðurstaðan er þessi:
Ég óttast ekki nammipúkann eða sætindagrísinn á jólunum.
Talandi um jólin, ég settist niður við jólasveinasaum í gærkvöld, keypti efni í tvo eftir föndurkvöldið hjá FAK.
Síðan var ég að klára að baða blómin mín í morgun, það er algjör nauðsyn, allt annað loft í íbúðinni eftir það.
Gangi þér vel áfram í mataræðinu sem og jólasaumnum
Kveðja Drekinn
p.s. ég er nr. 1005
Þannig að ég styð þig 100% í því að halda við DANNA um jólin, sem og aðra daga.
Kveðja úr Hvergilandi.
ps ég var nr 1020. bara traffík
Það er gott að lesa hugleiðingar þínar um jólafreistingarnar.
Við tökum á því.........vel undirbúnar ;)