Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Helgin

20. nóvember 2006 klukkan 14:56
Jæja, loksins kemur færsla! Takk fyrir kommentin og kvitt í gestabókina Glottandi
Ég skemmti mér vel á námskeiðinu sem við vorum með á föstudag og laugardag fyrir skógarbændur, það voru ekki endalausir fyrirlestrar heldur sátu allir með hníf og tálguðu í tré. Ég verð nú að segja að ég er engin tálgunarmaður/kona þetta er jú ágætt en samt ég heillaðist ekki alveg uppúr skónum. Stefán Snær fékk að fara með mér seinnipartinn á föstudaginn og þetta á miklu betur við hann. Ég held mig bara við saumaskapinn og prjónið!
Í gær var letidagur, ég fór með strákana í heimsókn í sveitina til Önnu Lísu og það var svakafjör eins og vant er, ég gleymdi að hafa með mér handavinnu til að heimsóknin væri fullkomin. Það er ofsalega notalegt að koma til Önnu, svo fallegt heimili og æðislegt hús og krakkarnir gleymdu sér í leik. Eftir hádegið rölti ég til Eddu og Gulla en þangað hef ég örugglega ekki komið í mánuð enda varð Þórður Logi bara feiminn.
Við skelltum okkur síðan á leiksýninguna hjá leikdeildinni, það er verið að sýna "Maður á mislitum sokkum" eftir Arnmund Backman, skondin sýning sem óhætt er að mæla með, ég hló út í eitt.
Mataræðið hefur gengið svona lalala...erfitt að fara eftir því þegar maður er á námskeiði og fer ekki í mat heima hjá sér...hmhmh ætli það hafi ekki verið svona 75% DDV vænt á föstudag og laugardag, ekki gramm af sykri nema jú á leiksýningunni í gær þá fengum við okkur kaffi, kleinu og pönnsu í hléinu...smá sykur þar....
Vikan verður bara venjuleg vinnuvika en síðan er von á Oddnýju Steinu í gistingu, gaman að því Hlæjandi Eigið góða vinnuviku og ég tala nú ekki um átaksviku!

Þúsundasti gesturinn er beðinn um að kvitta fyrir sig....það verður kannski ekki í dag en vonandi á morgun Brosandi
takk fyrir innlitið.
Setti linkinn þinn á síðuna mína.
Vona að það sé í lagi.
baráttukveðja að norðan
#1
20. nóvember 2006 klukkan 16:26
Ja, þetta innlit mitt er nr 973....

Ég kíki hingað reglulega en er alltof löt við að kvitta fyrir mig.

Kannast vel við þetta hvað það er erfiðara að halda sig við gott mataræð þegar að maður er á flakki.
#2
20. nóvember 2006 klukkan 17:28
Gott að þú áttir góða helgi.
Það er alltaf svo mikið og skemmtilegt að gertast þarna í sveitinni. Ég verð að fara narra minn mann í bændaskólann svo að ég geti flutt á Hvanneyri til ykkar. hehehe
Ps búin að kaupa mér nýjan ískáp, varð að vera eins
#3
20. nóvember 2006 klukkan 18:28
Já það hefur aldeilis verið fjör um helgina!! Ákvað að kvitta, átti alltaf eftir að gera það. Rosalega sem bloggið getur hjálpað manni, við vitum næstum allt sem er að gerast hjá hvort öðru. Annars, hlakka til að sjá ykkur í laufabrauðinu!!
Sigga biður að heilsa!!
Kveðja, litli brósi!!
#4
20. nóvember 2006 klukkan 22:55

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.