Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Smá hreyfing

17. nóvember 2006 klukkan 17:13
Ég hafði það af að fara í leikfimi eða þolfimi eða eins og sagt er á útlensku aerobik í gær. Húrra fyrir mér! Þetta var bara spaugilegt, við vorum 8 sem mættum og kennarinn sem er frá Litháen....ímyndið ykkur við konurnar/kerlurnar í öllum stærðum og gerðum, mistaktvissar (ég bara var að drepast úr hlátri, náði alls ekki þessum takti), skjálfandi úr kulda í þessari líka íþróttahöll sem er hér á Hvanneyri. Fyrir þá sem ekki til þekkja þá er íþróttahúsið okkar á tíræðisaldri, það var byggt úr afgöngum þegar "Gamli skóli" var byggður á sínum tíma. Einfalt gler í gluggum og brak og brestir í gólfinu....rosalega kósí og sjarmerandi, bara forréttindi að hafa aðgang að svona húsi. Það er bara eitt sem maður þarf að hafa í huga þegar maður er að fara þarna í íþróttir, það er að vera vel klæddur og í skóm og helst með dýnu eða teppi því gólfkuldi er mikill í húsinu.
Þessir tímar eiga að vera til jóla tvisvar í viku, ágætis byrjun að fara fast í það og taka svo sundið, stafgönguna og gönguna með. Annars vorum við Tedda að tala um að fara að skella okkur í últraspinningtíma hjá Gunnu og Erlu í Borgarnesi á laugardagsmorgnum. Það eru frábærir tímar fór oft í þá áður en ég varð ólétt, tveggja tíma puð og pottur og gufa á eftir, æði. Byrja ekki í því á morgun og sennilega ekki næsta laugardag heldur...einhverntíman þó!

p.s. engir strengir, ekki gott, þá hef ég ekki tekið nóg á Óákveðinn
 
Ţórunn H.
Þvílíkur kraftur í þér kona góð - er þetta sítrónusafinn eða hvað????
Ég verð að vera með þér í anda til að byrja með vegna anna eins og þú veist en ég held mér veiti ekki af því að fara að undirbúa mig andlega fyrir þetta heljarsprikl sem þú ert að leggja drög að.....þ.e.a.s. ef ég á nokkurn tíma eftir að ná í skottið á þér síðar. Kveðja ÞH
#1
17. nóvember 2006 klukkan 19:24
Þórunn mín þetta er ekkert mál;) Þú ert í heljar sprikli nú þegar.....það þarf sko þónokkra orku til að geta staðið á fjölunum kvöld eftir kvöld og eltast við krakkaorma á daginn. Sjáumst:)
#2
17. nóvember 2006 klukkan 20:41
Isspiss, þó þú fáir ekki strengi þá fórstu nú samt í leikfimina! Það er meira en ég get stært mig af þessa dagana. Hef alltof lítinn tíma til að hreyfa mig eitthvað.
#3
18. nóvember 2006 klukkan 15:17
Vá hvað þú ert dugleg að fara í ræktinafrábært hjá þér. Gangi þér vel áfram dúllan mín.
#4
19. nóvember 2006 klukkan 20:53

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.