Djöfull er gott að bloggið er komið í lag...var komin með fráhvarfseinkenni...gott að geta lesið það sem að stóra systir hefur að segja.
Annars er ég sammála þessu með græna teið...virkinlega hreinsandi og gott;-)
En svo er líka alltaf hægt að skella sér t.d. til Póllands í gegnum Jónínu Ben. www.detox.is og hreinsa líkama og sál...!!!!
Knús og kossar
Loksins
16. nóvember 2006 klukkan 19:14
Jæja loksins er kerfið komið í lag.
Það sem er helst að frétta hjá mér rita ég hér í stikkorðastíl því ég hef ekki mikinn tíma fyrir blogg í augnablikinu:
Þórður Logi er aftur veikur! Jamm en hann fer líklega til dagmömmu á morgun.
Það var saumó í gær, fínn saumó gerði slatta í jóladagatalinu og borðaði slatta. Margrét Helga sem var með saumóinn var með ddv vænar veitingar, þetta eru sko algjörar dúllur í þessum klúbb.
Jólaföndur hjá FAK er í kvöld, gaman, gaman.
Síðan er að hefjast 6 vikna leikfiminámskeið hér á Hvanneyri, það verður tvisvar í viku kl 17:00 og ég ætla að vera með, ekki spurning.
Námskeið hjá vinnunni á morgun og laugardag, alltaf nóg að gera hjá mér
Tala vikunnar: -1,5
Í vigtuninni síðasta þriðjudag var ein kona sem hafði náð að léttast um 2,9 kg! Það eina sem hún breytti þá vikuna var að hún kreisti hálfa sítrónu út í bolla af vatni á hverjum morgni.....jamm rosa gott fyrir lifrina!

Ótrúlegt þetta með sítrónuna... Mér hefur stundum fundist það líka hjálpa til að drekka nóg af grænu tei...
Kær kveðja
Hanna Dóra