Skógarkot
13. nóvember 2006 klukkan 15:09
Helgin var yndisleg. Óvissuferð FAK-hópsins hófst heima hjá mér, þær komu; Helga, Guðrún og Svava. Eftir kaffisopa og smá spjall var lagt af stað sem leið lá í Skógarkot, þar beið Þórunn P eftir okkur en hún var búin að kveikja á kertum, leggja á borð og hita grænmetissúpuna góðu sem ég hafði mallað heima kvöldið áður. Þegar klukkan var að verða átta skelltum við okkur út í bíl og keyrðum í Reykholt, þar fórum við á svokallaðan "heilsugang" vorum í ca tvo tíma þar í dekri, (slökun, nudd, aromatherapy, skammdegisþunglyndismeðferð) alveg ljómandi gott skal ég segja ykkur. Fórum þá aftur í bústaðinn og kjöftuðum fram á nótt.
Morguninn eftir var farið í gönguferð og um hádegisbil fóru þær kerlurnar heim en við Þórunn urðum eftir og biðum eftir körlunum okkar og börnunum. Það sem eftir var af helginni vorum við svo í góðu yfirlæti með fjölskyldunum okkar, fórum í gönguferð, tíndum köngla, borðuðum góðan mat, fórum í pottinn (börnin fóru 3 eða 4 sinnum) þetta var ofsalega góð helgi og kosturinn var samt að þetta er svo stutt að heiman, maður er innan við hálftíma að keyra í allt annað umhverfi.
Ég er strax farin að huga að næstu ferð í þennan bústað, ekki spurning.
P.S. er rosalega ánægð með ísskápinn nýja....takk fyrir hamingjuóskir og hlý komment!!

Hæ hæ - og takk kærlega fyrir frábæra óvissuferð. Það var alveg endurnýjuð Guðrún Björk sem settist niður við lærdóm á laugardaginn.
#2
14. nóvember 2006 klukkan 01:18
Gaman að heyra hvað þú áttir góða helgi
Fer nú bráðum að kíkja á þig þó ekki næstu helgi en vonandi fljótlega..!!!
Knús og kossar frá Skagafirði