Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

ROK

10. nóvember 2006 klukkan 14:48
Fór í afmæli til Brynjars Snæs seinnipartinn í gær, töffarinn er orðinn 5 ára, fékk mér smá kökusneið þar...gat eiginlega ekki annað, það var semsagt mjög meðvituð ákvörðun að fá sér kökusneið og kókoskaffi frá kaffitári með mmmmmmmm algjör draumur. Skellti mér í Bónus í sömu ferð og verslaði fyrir óvissuferðina, þegar heim kom blasti við mér ónýtur ísskápur!!! arg, jamm hann er ónýtur, já bara alveg steindauður. Við höfum lengi talað um að fara að endurnýja gripinn en ekki komið því í verk, svo núna í dag förum við hjónin í Borgarnes nánar tiltekið í Húsasmiðjuna og kaupum STÓRAN ísskáp Gráðugur

Það er rok. Kleppjárnsreykjaskóla var aflýst í dag vegna veðurs, ekkert vit í að senda börnin í þessu roki með rútu upp í sveit.
Þegar ég mætti í vinnuna í morgun gnauðaði svo í húsinu því inn á einhverri skrifstofu hefur verið pínulítil rifa á glugga og þvílík læti. Við vorum tvær sem mættum á sama tíma og það var svolítið draugalegt.....tvær í þessu stóra drungalega húsi sem gnauðaði  í!! Síðan þegar mínúturnar liðu þá lifnaði húsið við, líf færðist í skrifstofurnar einni af annarri.
Ef það væri ekki bara rok heldur líka snjókoma þá væri svona ekta "undirsængveðurmeðbók"

Núna hef ég farið yfir tölvupóstinn og kíkt á verkefni dagsins, komin með kaffibollann og er að fara að vinna Hlæjandi

p.s. þennan dag fyrir 22 árum var bróðir minn skírður, man enn hvað ég var spennt að vita hvað hann ætti að heita, og fötin sem mamma keypti á hann fyrir þennan atburð, þau voru æði. Man að hún keypti þau í barnafataverslun sem var í Brekkugötunni á Akureyri, rétt við Ráðhústorgið. Svona man maður!!!!!

Smá "uppdeit"
Skruppum í hádeginu og keyptum ísskáp, tók Heiðu á orðinu og keypti einn RISASTÓRAN 180 cm á hæð ooooooo æði!!! Þið getið séð mynd af honum
hér


Hafðu hann bara nógu stóran ískápinn!!!
Ég kem svo á Hvanneyri við tækifæri og skrá mig í kvenfélagið.. hehe
#1
10. nóvember 2006 klukkan 15:21
Já veðrið er búið að vera klikkað.
Til hamingju með ísskápinn:)))
Gangi þér vel.
#2
11. nóvember 2006 klukkan 01:39
Glæsilegur er hann, ísskápurinn!!
Ég hjó eftir því í lýsingunni að það eru ÞRJÁR grænmetisskúffur. Hann er mikið danska vænn.
Til lukku með þetta mín kæra!!!!!
Komstu ekki allri matvörunni inn og meira til hehe.
#3
11. nóvember 2006 klukkan 04:39
 
ónefnd
Gangi þér vel, vinnst þú rosa dugleg.
Kveðja, ónefnd sem kom inn á síðuna þína fyrir tilviljun.
#4
12. nóvember 2006 klukkan 04:49

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.