Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Það sem ég sagt vildi hafa.....

09. nóvember 2006 klukkan 14:48
Af hverju er maður að kvarta yfir nokkrum aukakílóum.....það er nú ekki eins og heimurinn sé að farast. Maður á að þakka fyrir góða heilsu, börnin og manninn! Allt hitt eru aukahlutir, veraldleg gæði píííp!

Ég og Þórunn P erum búnar skipuleggja óvissuferð fyrir FAK-hópinn, förum seinnipartinn á morgun, gaman, gaman. FAK er félag aðfluttra kvenna í Borgarfirði, félagsskapurinn varð til fyrir tæpum tveimur árum síðan. Mjög skemmtilegur félagsskapur Hlæjandi

p.s. góð heilsa gæti reyndar fengist með fáum aukakílóum!!
 
Þórey
Mér sýnist nú bara ganga vel hjá þér í þeim danska núna. Vildi að ég gæti sagt það sama :( er ekki byrjuð aftur þar sem ég er enn á þessu flandri. Hræðilegt að vera í fæði hjá bændum, það er svo rosalega góður matur og allar kökurnar maður..æææææ..... EN einhvertímann kemur að þessu.
Góða skemmtun í óvissuferðinni.
Er á Selfossi núna og ætla að skella mér í bíó á Mýrina, vona að hún sé góð..
#1
09. nóvember 2006 klukkan 23:38
Mýrin er frábær....!!!
Góða skemmtun Sigga mín
Knús og kossar
#2
10. nóvember 2006 klukkan 02:49
 
Sólrún Halla
Það eru aldeilis klúbbarnir sem þú ert í, það er fák, kvenfélagið, ddv, saumaklúbbar, matarklúbbar og ég veit ekki hvað og hvað. En það er svo sem gott að hafa alltaf nóg að gera. Haltu bara áfram þína góða striki í ddv og vona að þú náir næsta markmiði
#3
10. nóvember 2006 klukkan 20:37

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.