hei!!!!
Þessi 300 gr fóru þó!! er það ekki? Það hefði verið verra ef að þau hefðu komið!!! En niður er alltaf niður, verðum að hugsa þannig!! En nú skaltu bara bíta á jaxlinn og bölva í hljóði og vera ákveðnari næstu viku. Mundu bara að drekka vatn og klára fituskammtinn þinn á hverjum degi.
Kveðja frá Hvolsvelli
Blót, blót, blót, blót, blót!!!! Pirr, pirr, pirr!!!
08. nóvember 2006 klukkan 03:14
Já, það er ljótt að blóta en mikið asssk... er ég sár og reið og fúl og allt það. Mér fannst ég vera búin að vera svo dugleg, hélt jafnvel að ég hefði náð töluverðum létting þessa vikuna en nei, ó nei!!! Pirr, pirr, pirr!! 300 grömm niður.
Þá er best að fara í Pollýönnuleik;
Ég er á túr....það er góð ástæða er það ekki?
Ég nota álfabikar, hann vigtar eitthvað.....eiginlega ekki nógu mikið huhum svona 16 grömm eða svo, nota bene tómur!
Það var fullt tungl um helgina, stórstreymi og allt það, eða var það ekki annars?
Já og lægð yfir landinu.
Verkalyf og pensilín og svoleiðis hægir á brennslu....en ég hef reyndar ekki verið að nota neitt svoleiðis.....
Ég fékk mér 100 gr af frönskum kartöflum á sunnudagskvöldið!!!! Sek!!!!!
Okey, ég þyngdist ekki þetta var þó léttingur.
Þá kemur Sigga Júlla, mjög raunsæ og yfirveguð:
Ég á eftir að skafa af mér 2,9 kg til að 10 kílóa múrinn falli. Þangað ætla ég að vera komin 23. des. 2006. Það þýðir 446 grömm verða að fara á viku fram að því. Það verður að takast, annars má ég hundur heita!!!!! voff, voff!!
Áskorunin:
Síðasta vigtun í námskeiðinu er 5. des. Líklega verður farið aftur af stað um miðjan janúar. Þannig að tímabilið frá 5. des til 15. jan, þá vorum við stöllurnar að ákveða að hittast hjá hvor annarri með eina vigt og vigta okkur....jamm og halda utan um þær tölur en markmiðið er að þyngjast ekki á þessu tímabili, það er áskorun.
Að lokum:
Muna eftir að hlæja og brosa.....já og nætursvefninn ;)

Sigga mín, þú stendur þig vel.
Áfram stóra systir áfram;-)
Knús og kossar
Áfram stóra systir áfram;-)
Knús og kossar
#3
08. nóvember 2006 klukkan 15:38
Ég var einmitt í þessum sporum í síðustu viku, þetta kemur allt saman! Þú verður búin að ná markmiðinu fyrir jól :)
Baráttukveðjur
Baráttukveðjur
#4
08. nóvember 2006 klukkan 17:09
Lífeðlisfræðin segir okkur að það verði mikil vökvasöfnun í líkamanum meðan á blæðingum stendur og vökvinn vegur jú töluvert. Svo þá eru 300gr niður bara gott. Vertu ánægð með þig að hafa ekki þyngst og skiptu pirringnum út fyrir ásetning um að gera bara enn betur næst.
Líst vel á að þið ætlið að halda vigtinni í skefjum um hátíðarnar, gott að standa saman í þessu.
Takk kærlega fyrir kommentin Bláklukka, þau hjálpa mér mikið.
Baráttukveðjur
Drekinn