Ţađ sem ég gerđi um helgina
Föstudagskvöld: kláraði Grafarþögn (bókina)
Laugardagur: Gerðist kvenfélagskona og fór á glernámskeið, gerði fimm hluti þar. Fór í te til Ingu Dóru. Fór á basar hjá gamla fólkinu á Dvalarheimilinu í Borgarnesi. Fór í afmæli til Teddu. Eldaði læri í kvöldmat.
Sunnudagur: Þreif baðherbergið. Fékk gesti. Náði í munina sem ég gerði á námsskeiðinu. Og aftur gestir. Þvoði þvott.
Á basarnum var rosalega flott kaffihlaðborð, örugglega hátt í 20 sortir, ég fékk mér flís af brauðtertu en naut þess að gefa stubbnum mínum heitan rétt og pönnsur. Afmælið hjá Teddu var eins og vant er á við meðal fermingarveislu....og ég var stapíl þar, smakkaði smá heitan rétt og einn munnbita af kaffiostaköku (úr nýjasta kökublaði Gestgjafans). Ég mundi samt segja að helgin hafi verið 100% DDV.
Varð hugsað til Dúu heitinnar um helgina, langaði svo óstjórnlega í prinspóló en hún fékk sér prinspóló á laugardögum þegar hún var á DDV fyrir nokkrum árum. Hún gekk reyndar alla leið og leyfði sér prins póló, litla kók í gleri og eina með öllu á laugardögum EN hún var líka alltaf búin að ganga brýrnar áður ;)
Fór ekkert í sund um helgina en ég ætlaði í morgun en þegar ljóst var að ég færi seint í rúmið í gærkv. þá ákvað ég að slaufa því, maður verður sko að fá góðan nætursvefn
Veit ekki hvort það verður neitt um sundferðir í vikunni þar sem ég hef trú á að ég verði á floti hmhm þið vitið frænkan í heimsókn! Spurning um að maður taki fram stafina og skelli sér í stafgöngu, hugs, hugs
Já, já það verður bara slatti að gera í vikunni, foreldraviðtal á morgun í grunnskólanum, vigtun annað kvöld og síðan er auglýstur stærsti foreldrafundur í heimi á miðvikudagskvöldið....það er fyrirlestur sem Stefán Karl heldur í beinni frá LA. Ja reyndar sá einhver hann auglýstan á þriðjudagskvöldið en það kemur allt í ljós.......
held ég hafi ekki kíkkað hingað lengi lengi - ekkert að standa mig í þessu EN auðvita kvitta ég þegar ég kíkka enda vel uppalinn ;)
hafðu það gott ... ég ætla að reyna að svara þessum spurningum um þig - það verður nú spennandi mar hehehee ;) :)