Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Þar kom að því....

02. nóvember 2006 klukkan 21:24
Það er komin skammdegisþreyta í mig, er syfjuð og hálf aum í hálsinum, á mjög erfitt með að koma mér á fætur á morgnana. Ég veit reyndar ástæðuna fyrir þessu, ég er farin að þjást af hreyfingarleysi. Hmhm, en þá vandast málið, mér finnst ég ekki hafa tíma til að stunda neitt seinnipart dags nema þá kannski göngutúra en þeir eru bara svolítið veðurháðir! Það hvessir nefnilega stundum svolítið mikið hér á Hvanneyri.
Áður en ég varð ófrísk af Þórði þá keyrði ég í Borgarnes 2-3 morgna í viku og fór í spinning, það var rosalega gott, eiginlega bara frábært. Edda mín fer í sund á hverjum morgni, í Borgarnes. Núna ætti ég að ákveða að fara með henni á morgnana, hún er margoft búin að bjóða mér með....já, ég held það bara, þá er það ákveðið.....nú syndi ég minnst 500 metra strax í fyrramálið. Svalur
Yfir og út.
Já nú líst mér vel á þig. Þetta er bæði gott fyrir þig líkamlega og andlega, það er svo gott að fara svona án fjölskyldumeðlimanna með einhverjum öðrum og eiga góða stund fyrir sig.
Kv Anna Lísa
#1
03. nóvember 2006 klukkan 18:47

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.