Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Ekki slćmt, ha?

01. nóvember 2006 klukkan 03:50
Nú verð ég að monta mig, ég stóð ekki í stað, ég þyngdist ekki, ég léttist um 400 grömm Glottandi Það er sko ekki slæmt. Ég mætti pakksödd í vigtun eftir að hafa borðað kvöldmat en ég er vön því áður en ég fer ....sumir hefðu kannski haldið að ég hefði svelt mig í dag, ónei ekki aldeilis.
Á fundinum í kvöld var Kristín með hugmynd að kakódrykk, ég á ekki allt sem þarf í hann þannig að ég gerði aðra útgáfu af kakódrykk: 250 ml fjörmjólk (hálfur mjólkuskammtur), ég hitaði hana. Síðan tók ég 5 gr kakó, 10 gr. olíu (2/3 fituskammtur) og hrærði út í örlítið soðið vatn. Síðan blandaði ég þessu kakójukki saman við mjólkina og setti síðan nokkra dropa af sætuefni og balidropum út í......þetta er mjög gott Ullandi
Hmm kanski Dublin hafi þessi áhrif á mann að maður léttist, ég var allavega í átaki hjá JSB á sínum tíma og lenti í að fara til Dublin á árshátíð og ég kom 2 kg léttari heim bara eftir eina helgi. Maður ætti kanski að skella sér þangað í svona hummm 2 mánuði allavega :D. Gangi þér vel. Harpa
#1
01. nóvember 2006 klukkan 04:18
 
Anna Lísa
Umm kakóið hljómar mjög girnilega. Æi Sigga mín ég er svo glöð hvað þú ert dugleg. 6,8 kg er bara þónokkuð stór % af því sem þú ætlar að missa í heildina er það ekki.

Jæja ég heyri í þér og bið formlega að heilsa
#2
01. nóvember 2006 klukkan 14:25
Til hamingju með flottan árangur
#3
01. nóvember 2006 klukkan 14:30
Gott hjá þér,alltaf gaman að sjá viktina fara niður?
#4
01. nóvember 2006 klukkan 15:43
Til lukku með léttinginn!
#5
01. nóvember 2006 klukkan 17:25
Anna Lísa, jú ef maður lítur á þetta þannig þá er ég búin að kveðja 1/3 eða ríflega 33%....
#6
01. nóvember 2006 klukkan 20:43

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.