Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

útafkeyrsla, púff

28. október 2006 klukkan 01:13
Já, núna þegar þetta er skrifað er ég bara að springa. Ástæðan er sú að ég var á námskeiði og gleymdi að gera ráðstafanir varðandi kvöldmatinn. Þegar ég kom heim var maðurinn minn búinn að gera viðeigandi ráðstafanir, panta pizzu!!! Jamm og ég fékk mér þrjár sneiðar og tvær brauðstangir, púff.....síðan fékk ég mér 300 grömm af grænmeti svona til að eitthvað væri rétt.....púff.....og ég er sprungtGráðugur  Það er eins gott að efasemdarfólkið sjái mig ekki núna, þ.e. fólkið sem er alltaf að draga þennan nýja lífsstíl í efa. Það þýðir ekkert að naga sig í handarbökin út af þessari útafkeyrslu, nú er bara að bretta upp ermar og gera allt 100% hér eftir!
þó að marh keyri útaf, þá er ekkert annað en að sitja færis á að komast upp á veginn aftur, ekki keyra mikið og lengi utan vega, því að það skemmir svo útfrá sér. Svona stattu þig kella og upp með þig.
Kveðja Heiða
#1
28. október 2006 klukkan 13:13
Svona upp á vegin aftur stelpa þú getur þetta, bara taka einn dag í einu, og áfram svo
#2
28. október 2006 klukkan 13:25
Hæ hæ

Finnst ofboðslega gott sem hún súper S (minnir allavegna að það hafi verið hún)sagði einhverntímann á blogginu sínu að hugsa ekki þegar maður bregður út af rétta mataræðinu að maður hafi fallið því að það er svo neikvætt og niðurrífandi, lætur manni líða eins og maður sé misheppnaður. Heldur hugsa þetta sem meðvitaða ákvörðun, ég ákvað í gær að fá mér pizzu og geri mér grein fyrir að það seinkar mér í átt að markmiði mínu. Þá er miklu auðveldara að halda áfram að borða rétt en ekki falla í gryfju frestinganna.

Þetta hefur hjálpað mér mikið, reyni alltaf að hugsa um þetta þegar ég er að hugsa um að fá mér eitthvað óhollt og oftar en ekki hætti ég við það.

Kveðja drekinn stóri
#3
28. október 2006 klukkan 14:43
 
Ţórunn
Svona er þetta bara - óvæntu atvikin liggja alls staðar í leyni. Það er eins gott að láta slíkt ekki setja sig úr jafnvægi. Ég held að margt sé verra en að springa á nokkrum pizzusneiðum, það er sykurinn og sætindin sem eru verst.
Ekki hugsa meira um þetta - liðið er liðið og nú er bara að taka upp þráðinn að nýju!
Baráttukveðjur :-)
#4
28. október 2006 klukkan 17:28
Ekki líta á svona sem eitthvað niðurdrepandi og neikvætt. Þú fórst aðeins útaf sporinu... og búið mál! nú er bara að halda áfram. Það lifa það allir af að bregðast sjálfum sér öðru hvoru. En við eigum líka að læra af því...
#5
30. október 2006 klukkan 16:48

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.