Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Lasarus

26. október 2006 klukkan 18:34
Já hann herra Lasarus er enn heima hjá mér!! Þórður Logi er ennþá kvefaður en svo til hitalaus. Stefnt var á að hann færi á morgun í dagvistunina en þá kom sms frá dagmömmunum og þær tilkynntu að það yrði lokað í dag og á morgun vegna veikinda....það eru bara flestir stubbarnir veikir semsagt. Við hjónakornin skiptum með okkur verkum tökum hálfa daga í vinnunni þessa vikuna, jamm svo er bara að krossa fingur og vona að Stefán Snær sleppi við þennan flensufjanda.
Ég var með saumó í gær. Bauð upp á sveppapaté, skyrtertu og eplapæið góða úr Vikunni, kaffi, te, sykurlaust gos (allt DDV vænt) og smá súkkulaði og doritos (fyrir sukkarana í hópnum). Þetta var bara frábært, þó ég segi sjálf frá Glottandi
Ég laumaðis á vigtina í morgun...veit það er ekkert að marka þar sem þetta er baðvigtin og klukkan var bara 10 eða eitthvað svoleiðis og ég er vön að fara í vigtun í Borgarnesi eftir kvöldmat....meira röflið í mér....en hvað um það þá virðist ég vera að léttast, þrátt fyrri sukkið og svínaríið um síðustu helgi....EN þetta kemur allt saman í ljós næsta þriðjudagskvöld því þá er vigtun!!!!!!! oooooo get eiginlega ekki beðið.
Það er vinnuhelgi framundan, það er námskeið fyrir skógarbændur á Vesturlandi seinnipartinn á morgun og á laugardag, ég verð þar....eitthvað að skipta mér af eins og vanalegaGlottandi Svo stendur til að gera slátur um helgina, það er bara sýnishorn af slátri, bara til að fá  smá smakk. Og ætli ég taki nú ekki eitthvað í jóladagatalið sem ég var að kaupa mér, þær í föndurbúðinni pöntuðu það fyrir mig fyrir meira en mánuði síðan og það var loksins að koma núna, klára það ekki fyrir þessi jól, stefni bara á næstu (það er 45 x 60 cm)!!
Nóg í bili Hlæjandi karlinn kominn heim og ég þarf að fara að vinna.
Hæ sæta snúlla,
Djöfull sem þú ert dugleg í þessu átaki...stolt af þér;-)
Vonandi að engin annar verði veikur hjá ykkur hjónakornum.
Heilsukveðjur frá Hólum
#1
26. október 2006 klukkan 20:17
 
drekinnstori
Sæl Bláklukka bara að kvitta fyrir innkíkið. Líst vel á þetta hjá þér, held að það sé sniðugt hjá þér að setja ekki of mörg markmið í einu, byrja á mataræðinu og svo er hægt að bæta hrefingunni inn seinna þegar mataræðið er lengra komið. Held að það séu allt of margir sem ætla að breyta öllu á einum degi og gefast upp.

Halltu þessu áfram

Kveðja Drekinn stóri
#2
26. október 2006 klukkan 22:08
Sæl, ákvað að kvitta fyrir kíkið mitt á síðuna þína, vona að lasarus fari nú að láta sig hverfa hjá þér. Ég er svo heppin að aðeins eitt af fimm börnum hér fékk þessa flensudrullu. Gangi þér áfram vel :) Kveðja Harpa

P.S. bætti þér inn á tengiliði hjá mér vona að það sé í lagi annars bara læturðu mig vita.
#3
26. október 2006 klukkan 22:10
Stendur þig vel skvís. Vonandi fer nú peyjinn að verða hress.
Skemmtu þér vel í sláturgerð , það er svo gaman.
#4
27. október 2006 klukkan 03:50
Hæ hæ..takk fyrir innlitið á okkar síðu!:) vona að veikindunum fari að linna hjá þér.. Við höfum sloppið enn sem betur fer...7,9,13!!;)
Til hamingju með árangurinn hingað til og gangi þér vel...:D kv. að austan miss UA
#5
27. október 2006 klukkan 17:10

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.