Mikið er gott hvað Stefán er að fá meiri áhuga á náminu.
Og frábært hvað þú ert fljót að komast á réttan kjöl aftur eftir ferðalagið (sko DDV lega séð) heheh
Kveðja úr Klapparholtinu
Hundrað prósent
24. október 2006 klukkan 13:30
Jæja þá er alvaran tekin við. Ég náði 100% degi í gær, það var pínu erfitt því ég bara nennti ekki að elda. Það reddaðist rétt fyrir horn og ég féll ekki í freistingar. Þórður Logi er lasinn, hann var með mikinn hita og kvef þegar við komum heim og skiptumst við á að vera með hann heima. Hitinn var um 38,5 í gær og vonandi veður hann ekki hærri í dag. Stefán Snær er í prófum þessa dagana þannig að mikill tími fer í að hjálpa honum að undirbúa sig fyrir þau en hann hefur mikinn metnað og vill læra. Þeir sem þekkja til vita að það er greinilegt að það er af sem áður var......... en hann Stefán Snær hefur verið heldur á eftir í öllu sem viðkemur námi og hefur skólagangan verið blóð sviti og tár, því viðhorf hans til skóla og náms hefur ekki verið gott.
Þess vegna er ég mjög ánægð með að hann vilji læra og vilji gera vel
Þess vegna er ég mjög ánægð með að hann vilji læra og vilji gera vel
En þessar pestir eru í hámarki þessa dagana, það eru allstaðar einhverjir lasarusar
GAngi ykkur vel og vonandi hressist þið sem fyrst