Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Dublin

23. október 2006 klukkan 14:40
Jæja þá er ég komin aftur, ca einu kílói þyngri EN hress og endurnærð eftir kærkomið frí Brosandi
Þetta var bara gaman. Við röltum heilmikið um fórum á pöbba og í búðir....sáum að því gátum við ekki sleppt þegar við sáum verðlagið. Haukur verslaði helling af gallabuxum og peysum, síðan var Stefán Snær dressaður upp en ekki veitti af drengurinn er að stækka svo mikið. Þórður Logi fékk minnst en hann er ágætlega settur fatalega séð. Ég keypti mér skó, mjög vandaða og fína vetrarskó, nærföt og peysu. Auðvitað keypti ég KJÓL æðislegan, ég tróð mér í hann en hann verður fínn um jólin Glottandi hann er fjólublár algjört æði!
Síðan röltuðum við í Guinness storehouse. Það var mjög gaman, kíktum á safnið og fórum síðan á efstu hæð í byggingunni en þar er útsýnisstaður og þar fékk maður sér einn Guinness og naut þess að horfa yfir borgina. Við vorum heppin með veður þannig að útsýnið var frábært. Á leiðinni heim tókum við konurnar hestvagn og það var heilmikið ævintýri, karlarnir ætluðu að labba heim en við komumst að því  á leiðinni á Temple Bar að þeir tóku taxa og ætluðu að vera komnir á undan okkur, voða fyndnir!!
Við gerðum vel við okkur í mat og drykk í þessari ferð, fyrsta kvöldið fórum við á indverskan stað, hann var svona lala. Föstudagskvöldið var æði þá fórum við á steikhús Shanahan´s (minnir að það sé skrifað svona) ég hef aldrei farið svona flott út að  borða, maturinn og þjónustan var ÆÐI, reikningurinn var svolítið hár (280 evrur fyrir okkur hjónin) en.....ha maður er ekki um hverja helgi í Dublin. Mæli með þessum stað hann er við Stephens Green.
Laugardagskvöldið var kvöld vonbrigðanna, fórum á veitingastað sem er í eigu Bono í U2 maturinn var ekkert spes, þjónustan léleg,  afundnir og leiðinlegir þjónar og frekar dýrt miðað við kvöldið áður (200 evrur fyrir okkur hjónin)....og svo var hann Bono ekki þarna!! arg...grín!
Pöbbarnir voru æði og írska kássan sem ég fékk mér á Gallagher´s rétt eftir að við komum á fimmtudaginn var snilld!
Kannski skelli ég inn myndum úr ferðinni við tækifæri.

NÆSTA MÁL Á DAGSKRÁ ER 100% DDV......NÚ Á AÐ TAKA Á ÞVÍ  Glottandi
Æðislegt hvað fríið heppnðist vel. Já hvernig er hægt að fara til Dublinar án þess að versla, það er bara ekki hægt. Ég er auðvitað búin að skoða góssið að leist vel á.
Núna er það bara harkan í DDV hjá okkur gæsimeyjunum ;)
#1
23. október 2006 klukkan 23:55
gott að fara í frí þegar veturinn er að byrja :)

sá loksins yngri son þinn - yndislegur :) en sá nú eldri soninn e-ð minna .... sé þig vonandi næst og kannski bara í þessum flotta kjól ;)
#2
24. október 2006 klukkan 02:23
 
Guđrún Hulda Pálmadóttir
Takk fyrir síðast Sigga mín
svaka stuð hjá okkur röltinu með stuðboltunum okkar. Gangi þér vel í átakinu. kv Guðrún
#3
01. nóvember 2006 klukkan 16:16

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.