Dulgeg systa er stolt að þér
Knús og kossar
Er alveg í losti....
18. október 2006 klukkan 13:16
Síðan er það næsta mál á dagskrá. Það er Dublin á morgun! Þannig að það verður nóg að gera í dag. Ég ætla reyndar að reyna að hætta klukkan þrjú í vinnunni til að klára að gera drengina klára en Haukur ætlar að skutla þeim norður í Skagafjörð til mömmu og pabba en þar verða þeir í góðu yfirlæti fram á sunnudag. Þórður Logi fær að fara með ömmu sinni í vinnuna í leikskólanum á Hólum og Stefán Snær fær að fara í grunnskólann á Hólum með frændsystkinum sínum.
Þessi Dublinarferð er jómfrúarferð matarklúbbsins en við erum búin að vera í matarklúbb síðan 1999, samtals tíu manns....þó misgáfulegir þannig að það er spurning um að einhverjir séu bara hálfir
Ég mun líklega ekki blogga aftur fyrr en eftir helgi og þá með ferska ferðasögu í farteskinu.
Ef ég hef tíma seinna í dag þá mun ég láta taka mynd af mér, svona til að sýna muninn fyrir og eftir 6,4 kg!!!
Þetta er bara æðislegt og frábært. Það er svo gaman þegar þetta kemur svona á óvart, maður býst við því að vigtar kvikindið verði bara leiðinlegt við mann og svo er bara allt í fína lagi með vigtina og mann.
OOO hvða ég öfunda þig að vera að fara til Dublinar, er að spá í að fara með múttu gömlu í nóvember.
Kveðja Anna Lísa