Dćs
17. október 2006 klukkan 15:07
Já í dag dæsi ég bara. Dagurinn í gær var mjög erfiður bæði andlega og líkamlega. Keyrðum norður í gærmorgun fórum að jarðaförinni svo var brunað út í Laufás þar sem fjölskyldan og vinir hittust. Boðið var uppá kaffi og "þurrabrauð" eins og Inga frænka orðaði svo skemmtilega. Hitti fullt af ættingjum sem maður hefur lítið sem ekkert hitt síðan í síðustu jarðaför, já ég veit....en því miður þá er það bara svona. Síðan brunuðum við aftur suður á leið og vorum komin heim um klukkan hálf tíu.....og ég var komin í rúmið korteri seinna....jamm og meira dæs. Það er óskaplega fallegt haustveður úti, það hefur gránað í fjöll og sólin skín. Lífið gengur sinn vanagang og því best að fara að vinna. Set inn nýjar tölur í fyrramálið
Já ég er komin út úr skápnum Sigga mín. Hætt að vera Hvönnin, þú sérð að núna er það annalisa.bloggar.is
#2
17. október 2006 klukkan 16:56
Silla!!
Kvitti kvitt... haha
Þú ert rosa dugleg!! YOU GO GIRL...
Sjáumst á KEF á leið til DUBLIN... vívíví
kveðja Silla.
Þú ert rosa dugleg!! YOU GO GIRL...
Sjáumst á KEF á leið til DUBLIN... vívíví
kveðja Silla.
#3
17. október 2006 klukkan 21:48
Ţórunn
Já elsku Sigga mín - mér varð hugsað til þín í gær, get rétt trúað að þetta hafi allt tekið á.
Var að koma heim, er í hálfgerðu losti og rússi eftir tannlækninn enda var dreginn úr mér jaxl og er með þennan líka svaka saum í munninum..... nú verður alla vega ekkert svindlað í kvöld.....
Sjáumst á morgun (fæ að heyra nánar um góðu fréttirnar), kveðja Þórunn

#4
18. október 2006 klukkan 03:23
Ég kíki á þig á eftir (ég verð að muna eftir fötunum) og við getum glatt hvor aðra.