Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Sigríður Júlía
  • Staður: Ås
  • Atvinna: Mastersnemi í Skogfag við Universitetet i miljö og biovitenskap
  • Hjúskaparstaða: Gift
  • Annað: Á tvo syni

Leit

Innskráningar kubbur

Komin frá Elverum

14. mars 2010 klukkan 20:00
...og hér eru nokkrar myndir Laughing Blogga um ferðina síðar Wink

Hlaupavika 2

14. mars 2010 klukkan 19:58
Vika 2 (Rask gange og oppstykket jogging).

Dagur 1.
Ganga rösklega í 25-30 mínútur, leiðin sem gengin er má gjarnan vera hæðótt.
Dagur 2.
Ganga rösklega í 10 mínútur. *Skokka í 1 mín, ganga í 1 mín*, endurtaka *til* fimm sinnum. Ganga í 10 mínútur.
Dagur 3.
Ganga röskelega í 10 mínútur. Ganga upp brekku í 2 mín og skokka niður, endurtaka fimm sinnum. Ganga í 5 mínútur.

Norge i 2010

12. mars 2010 klukkan 07:27
Við Haukur fórum á foreldrafélagsfund í bekknum hans Stefáns í gær. Málefni fundarins var órói og óviðunandi vinnunæði í bekknum, skólaferðalag sem á að fara haustið 2011 (já ég skrifaði rétt 2011!!) og einelti.
Það er einn nemandi í bekknum sem hefur orðið fyrir einelti í vetur en það eru ekki bekkjarfélagarnir sem eru gerendur, einelti (n. mobbing) er ólöglegt og því er tekið á því hið snarasta en forledrar voru beðnir um að vera vakandi fyrir líðan barnanna sinna.
Síðan var farið að tala um óróan í bekknum, þetta á sér reyndar ekki stað þegar Ellen umsjónarkennarinn er með bekkinn heldur þegar aðrir kennarar koma inn. Hvað veldur, svarið er einfalt.
Málið er að í bekknum eru 25 krakkar, 7 stelpur og 18 strákar. Í haust voru tveir umsjónarkennarar Ellen sem er raungreinakennari og Renate sem er norksu og enskukennari. Renate veiktist í október og varð því "sykemelt" og í staðin fyrir hana var fenginn afleysingakennari í gegn um "Addekko" sem er svona afleysingafólksskrifstofa, eins konar miðlari. Til að gera langa sögu stutta þá er staðan sú að Renate verður "sykemelt" til sumars. Afleysingakennarinn sem var lengst með norksuna fékk fast starf í amerískum skóla í Osló, sko afleysingakennarinn í norsku var bandarísk kona sem talaði sænsku!!!
Nú er svo komið að enginn kennari er til að kenna norksu og þannig hefur það verið í rúman mánuð. Það finnst ekki fólk, þrátt fyrir ítrekaðar auglýsingar og leit. Mér finnst þetta óviðunandi. Þetta hefur einnig haft það í för með sér að Ellen raungreinakennarinn er orðin umsjónarkennari og tengiliður allra barnanna í bekknum og er í meira en 100% starfi. Þessi óstöðugleiki og það eru sífellt nýjir kennarar að koma inn veldur að sjálfsögðu óróa í bekknum og erfitt við það að eiga. Hér vantar starfsfólk inn í skólana, sárlega!!!
Hugsið ykkur, ég hef hitt Ellen kennara á óformlegum fundi okkar á milli og þá hittumst við á kaffihúsi því það er ekki aðstaða fyrir kennarana til að spjalla við foreldra í skólanum, hún tekur með sér verkefni nemenda og bækur heim til að fara yfir því hún er með smá vinnuaðstöðu heima hjá sér og litla sem enga aðstöðu í skólanum. Finnst ykkur þetta í lagi??? Og eins og hún sagði á fundinum í gær, "vi er i Norge 2010!"
Svo var annað sem kom til tals, það er bara hægt að opna einn glugga í einu í kennslustofunni...jebb en sem betur fer er reyndar lokan á einum biluð þannig að hann er alltaf opinn og þá er hægt að hafa tvo glugga opna!!!
Svo ég haldi áfram með fundinn þá var einnig verið að ræða væntanlegt skólaferðalag sem fara á í haustið 2011!!! ...og það sem hægt er að diskútera hlutina, jeminneini....ekki alveg íslenski stíllinn á þessu. Okey allt í lagi að skipuleggja í tíma en já sæll, við erum að tala um ferðalag eftir eitt og hálft ár!!!

Ferðahugur

10. mars 2010 klukkan 08:31
Fengum heimsókn hér á mánudaginn, Þórunn Reykdal kíkti við í kaffi en hún var á NOVA-BOVA fundi hér í Ås. Hún kom með kaffipakka og einnig glaðning frá Eddu, Hagvers döðlur, lakkrís og lítil páskaegg. Allir glaðir með það, tusen takk Edda!! Cool
Vikan hefur annars verið aðgerðarlítil, ég er að myndast við að lesa fyrir próf, gengur erfiðlega en Þórður var heima í gær veikur og er líka heima í dag. Stefán er hálfslappur líka og er þess vegna einnig heima. Við vonum bara að þeir verði orðinir hressir á föstudaginn þegar við leggjum í hann til Elverum. Ætlum að heimsækja Oddný, Ola og Svavar. Stefnum að því að fara á skíði í Budor á laugardeginum og svo finnum við uppá einhverju á sunnudeginum, höfum aldrei komið til Elverum og því mikið hægt að skoða og sjá eins og t.d. skógarsafnið en þetta á allt eftir að koma í ljós en þetta verður eflaust ekki síðasta ferðin okkar á þessar slóðir trúi ég.
Það gengur vel að fara eftir nýja hlaupaprógramminu, bara tveir dagar búnir í viku eitt en ég hef góða tilfinningu fyrir þessu Wink
Annars gengur lífið bara út á skóla og vinnu en við erum með plön um að nýta fríhelgarnar sem mest til ferðalaga enda er mikið að skoða hér og tíminn ískyggilega fljótur að líða, finnst eins og ég sé alveg að fara að flytja heim, bara rúmt ár eftir!!!
Páskarnir eru ekkert planaðir enn en við verðum eitthvað á faraldsfæti, því get ég lofað.

Útivist og góðviðri

07. mars 2010 klukkan 17:05
Í gær fóru drengirnir, allir þrír ásamt Ragnari að dorga. Í dag fóru þeir allir aftur að dorga og ég skellti mér með og einnig kom Sveinbjörn kærasti Hildar.
Gönguskíði, gönguferðir, útivist, samvera með skemmtilegu fólki ...... já þannig hefur helgin verið hjá okkurLaughing
Núna um helgina sá maður í fyrsta sinn + tölu á útimæli síðan löngu fyrir jól en það var alveg 1°C Wink
Það eru komin tvö dorgveiðialbúm á myndasíðuna hér.
Einnig er hér til hliðar undirsíða sem heitir hlaupaprógrammið en þar er ég búin að slá inn fyrstu fjórar vikurnar.

Í dag fór ég....

05. mars 2010 klukkan 16:44
...í Ås treningsenter og hitti Annicken. Hún lét mig fá hlaupaprógram sem hún mælti með og nær það yfir næstu tuttugu vikur, hvorki meira né minna! Ef ég verð einbeitt og held mig við efnið þá ætti ég að geta hlaupið 10 km og fara létt með það.
Eitt sem hún lagði mikla áherslu á er að þegar maður byrjar að fara eftir prógrammi eins og þessu þá:
1. Fara eftir prógramminu, ekki stökkva yfir vikur.
2. Passa að festa sig ekki við sömu hlaupaleiðina og ef maður er á bretti stilla hallann í ólíkar gráður og hafa svona "variasjon" í þessu.
3. Teygja VEL á eftir.

Miðað við þessi einföldu tips þá er ég alltaf að gera vitleysur þegar ég tek mínar hlaupadífur.
1. Ég fer aldrei nákvæmlega eftir prógramminu.
2. Ég vil oftast fara sömu leiðina.
3. Ég er löt að teygja.

Hlaupaprógammið er eins og áður sagði tuttugu vikna prógram og er miðað við að maður fari þrisvar í viku.
Ég byrja á morgun Wink

Vika 1. "Hovedvekt på å gå sammenhengende".
Dagur 1.

Ganga rösklega í 25 mínútur. Tempóið á að vera þannig að maður geti haldið uppi samræðum á meðan á göngu stendur.
Dagur 2.
Interval-æfing. Ganga rösklega í 10 mínútur. Skokk í 1 mín, ganga í 2 mínútur, skokk í 1 mín, ganga í 2 mínútur, skokk í 1 mín, ganga í 2 mínútur, skokk í 1 mín. Ganga í 5 mínútur.
Dagur 3.
Brekkuæfing. Ganga rösklega í 5 mínútur. Ganga upp brekku í 2 mínútur og skokka til baka niður brekkuna,ganga upp brekku í 2 mínútur og skokka til baka niður brekkuna, ganga upp brekku í 2 mínútur og skokka til baka niður brekkuna, ganga upp brekku í 2 mínútur og skokka til baka niður brekkuna. Ganga rösklega 5 mínútur.

Fyrsti dagur er á morgun, dagur tvö á mánudag og dagur þrjú á miðvikudag. Eftir viku læt ég ykkur vita hvernig vika 2 hljómar Smile

Veðrið hér er alveg frábært, sló öllu upp í kæruleysi eftir hádegið í dag og fór á skíði. Í morgun var -16,5° á hitamælinum í bílnum en uppúr hádeginu var hitastigið komið niður í -3° en þannig er þetta hér þessa dagana. Hitasveiflan er gífurleg. Í morgun kom sólin upp klukkan 7:03(heimild Østlandsbladet)....og já sólin skín!!!

Njótið helgarinnar Cool




03. mars 2010 klukkan 20:13
Ég held ég sé ekki búin að segja ykkur frá því kæru blogglesendur að ég er komin með Mastersverkefni, með stóru M-i Laughing Sum ykkar vita það en aðrir ekki.
Það sem felst í þessu verkefni er að útbúa mats og vottunarkerfi fyrir kolefnisbindingu í íslenskum skógum, þetta er verkefni sem verið er að starta núna og mér var boðið að vera með Smile Þetta hefur í för með sér ferðalög heim á Fróna á árinu, eitt er fastákveðið en það er í byrjun ágúst en þá kem ég heim og vinn með vinnuhópnum við kortlagningu. Svo dúkka upp aðrar ferðir þessu tengdu en þær eru þó ekki fastákveðnar enn.

Hér er ansi kalt þegar maður fer út á morgnana oftast í kringum -10° en sólin skín og þá volgnar á daginn, fuglarnir syngja og göturnar eru rakar - það er að koma vor, ég finn það!!

Við ætlum að skreppa í ferðalag helgina 12.-14. mars. Förum til Elverum í heimsókn til Oddnýjar og fjölskyldu. Það verður örugglega gaman en planið er að fara á skíði og skoða umhverfið Smile
En þangað til verð ég að halda rétt á spöðunum og vinna vel Laughing

MEST ER EKKI BEST!!

01. mars 2010 klukkan 19:04
Var að lesa umræðuþráð á netinu þar sem kona ein var að biðja um ráðleggingar varðandi hlaupaprógramm. Til að svara henni var ein af fræknustu hlaupadrottningum Íslands sem hefur yfir 25 ára reynslu af hlaupum og 10 ár í þjálfun hún sagði eina gullsetningu sem mér þótti ansi góð: "MEST ER EKKI BEST"!
Það er nefnilega málið, fólk á það nefnilega til að ofkeyra sig, ætla sér of mikið en til hvers??
Ég hef verið nokkuð dugleg að fara í tíma í Ås treningsenter í það minnsta tvisvar í viku en svo hefur það verið planið að bæta inn hlaupaæfingum og hef ég legið yfir allskonar hlaupaprógrömmum. Hef ekki enn fundið það eina rétta fyrir mig.
Það er mikilvægt að gera eitthvað annað en bara að hlaupa sem ég geri jú með þessum tímum í treningsenterinu og eins og hlaupadrottningin sagði þá er jú mjög gott að taka eitthvað annað með eins og t.d. leikfimi eða yoga.
Ég talaði við einn þjálfarann í Ås treningsenter og ætlum við að hittast á föstudaginn í þessari viku þar sem útbúið verður hlaupaprógram með mínar þarfir, getu og markmið í huga. Markmiðið er ekki að verða best, nei takk! Mitt markmið er að ég verði í góðu formi, tilbúin í afrek sumarsins (gönguferðir úti í náttúrunni og á fjöll eru jú mitt helsta áhugamál) og auðvitað að vera klár í slaginn og hlaupa 10 km Cool
Ég held að lykillinn að velgengni sé að fá aðstoð hjá fagfólki þegar maður er að setja sér markmið - sérfræðingarnir eru jú til þess....ég meina ekki er ég sérfræðingur í hreyfingu - sérhæfingin mín er meira tengd skógum Laughing
Slátrarar slátra, snyrtifræðingarnir vaxa mann, hárgreiðslukonurnar klippa mann, bifvélavirkjar gera við bíla, læknar lækna og svo framvegis......

Uppskriftablogg

28. febrúar 2010 klukkan 16:40
Þetta eldaði ég í gær:
4 - 5 Kjúklingabringur (má líka vera kjúlli í bitum skinnlaus).
1 - 2 bollir appelsínusafi
1 - 2 bolli vatn
1 laukur saxaður
4 hvílauksrif pressuð
2 appelsínur niðursneiddar
pipar
kanill
salt

Ég byrjaði á þvi að steikja bringurnar í olíu á pönnu og kryddaði með pipar og kanil. Setti þær svo í pott.
Setti vökvann í pottinn, ásamt, appelsínum, lauk og hvítlauk, setti svo smá meira af pipar og kanil og einnig salt.
Sauð í 30-40 mínútur og bar fram hrísgrjón og salat með þessu. Þetta þótti öllum á heimilinu rosalega gott og ekki var það slæmt að eiga smá afgang af bringunum sem ég setti í kjúklingasalat í hádeginu í dag  mmmmmmm!!


Þetta ætla ég að elda í kvöld:
Svínasnitsel
Marenering: Taco krydd (þetta í pokunum), pipar og olía - magn eftir smekk.
Svínasnitselið fór í mareneringu í morgun.
Síðan er planið að steikja snitselið á pönnu.
Meðlætið:
1 1/2 Paprika
3 Tómatar
1 Laukur
3 Hvítlauksrif
Sveppir (bara einhver slatti)
Allt steikt á pönnu og 3-4 msk salsa sósa sett saman við.
Hef ekki ákveðið hvort ég baki kartöflur með þessu eða sjóði grjón - sjáum til {#emotions_dlg.cool}

Tvö ný albúm

25. febrúar 2010 klukkan 08:47
Búin að setja inn tvö ný albúm á myndasíðuna:
Febrúar 2010 (1) bolludags og skíðagöngumyndir.
Febrúar 2010 (2) myndir frá Svíþjóðarferðinni.
Endilega skoðið hér Smile

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburðarteljari

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.