Afmælishelgi
05. september 2010 klukkan 08:20
Það sem af er helgi hefur ýmislegt verið brallað. Á föstudaginn eftir skóla og vinnu bakaði ég kökur fyrir kökuloddið sem var í gær, við mæðginin fórum í búð til að kaupa afmælisgjöf, okkur var boðið í mat (alísvín) á meðan Haukur fór með vinnufélögunum sínum í villisvínaveislu. Ég varð svo að sækja hann tímanlega í veisluna því ekki var hægt að missa af landsleiknum. Villisvínaveilsan var haldin á sveitabæ hjá gömlum bónda sem sérhæfir sig í villisvínaveislum, ég þurfti að keyra malarveg eitthvert lengst út í skóg og rambaði að lokum á þetta. Leikurinn var hafinn þegar heim var komið en það var ekki tekið út með sældinni að finna út úr því hvar leikurinn var sýndur því hann var á lokaðri stöð sem ekki var mögulegt að kaupa aðgang að nema í gegn um tölvu og það kostaði eitthvað á milli 100 og 200 NOK sem er slatti mikið. En eins og allir vita þá fór þetta ekki nógu vel.....
Í gærmorgun, kláraði ég að græja "lodd" kökurnar, pakka þeim inn og svo bakaði ég eina BOMBU í tilefni dagsins, fór í spinningtíma með Bríeti og ég held ég geti fullyrt að ég hef sjaldan farið í jafn góðan tíma VÁ!! Þegar heim var komið græjuðum við okkur, smurðum nesti og fórum öll fjölskyldan í Tusenfryd þar sem við áttum stefnumót við vini okkar frá Elverum þau Oddný, Ola og börn - tókum salibunu í nokkrum tækjum og buðum þeim svo heim í afmæliskaffi. Oddný, Ola og stelpurnar brunuðu af stað til Jessheim en Svavar varð eftir hjá okkur, tekur lestina upp í ELverum í dag. En best að halda áfram.....að kaffitímanum loknum skelltum við okkur með nokkra maísstöngla og smá kjöt yfir til Hrafnhildar og Ragnars þar sem þau höfðu skipulagt sameiginlega íslendingamáltíð, við borðuðum og fórum snemma heim, alveg búin á því - Haukur eftir villisvínadjammið og ég eftir spinningtímann.
Í dag ætla ég út að skokka, Kunningi Hauks hann Pétur Hrólfs ætlar að kíkja í heimsókn og svo er það bara að njóta veðurblíðunnar.
Svo er stutt í næstu Tusenfrydferð, Vilborg frænka mín og dóttir hennar hún María Lovísa fluttu til Bærum fyrir tæpum mánuði síðan og við höfum enn ekki hist, þær stefna að því að koma um næstu helgi
Stefán og Svavar ætla að reyna að komast á veiðinámskeið eftir hálfan mánuð í Trysil, þetta er svona fugla og héraveiðinámskeið, mjög spennandi. Helgina 24.-26. sept fer Stefán síðan á fermingarbarnamót sem verður haldið í Svíþjóð og er sameiginlegt fyrir íslenska krakka á norðurlöndunum. Brjálað að gera hjá drengnum!!!
Jæja best að hætta þessu og koma sér í hlaupagallann, eigið góðan dag

tölvubras
02. september 2010 klukkan 20:30
Er að reyna að breyta aðeins "bannernum" á síðunni en það er ekki alveg að ganga upp eins og ég ætlaði 
Annars er dagurinn búinn að vera góður, gaman í skólanum, gaman í Sverige og auðvitað keyptum við hellingsmat og m.a. íslenskan fisk
já og fyrsta "Bergans" flíkin mín er komin í hús
Reyndar ekki útivistarskel eins og mig vantar, merkilegt að ég bara virðist ekki ætla að detta niður á eða finna það sem hentar mér og er á viðráðanlegu veðri. Sá einn í Lillehammer um daginn sem kostaði aðeins 4000 NOK en ég var að hugsa um að kaupa mér skel á svona ca 2000 NOK og flíkin á að vera regnheld og með góða öndunareiginleika. En það fór allavega þannig í Sverige að ég sá ullarjakka sem ég gjörsamlega féll fyrir og keypti - æi það er stundum þannig bara
þið getið fundið hann hér, í dömuflokknum, undir "teknisk ull" og hann heitir "1912 Myrull Lady Coat" og er svartur - hlakka til að vera í honum í vetur. Fékk reyndar dúnúlpu í afmælisgjöf frá Hauk og strákunum sem þeir áttu eftir að kaupa, þannig að þetta kemur svona í staðin fyrir hana.....bíddu, bíddu.....af hverju er ég að afsaka þessi kaup????

Annars er dagurinn búinn að vera góður, gaman í skólanum, gaman í Sverige og auðvitað keyptum við hellingsmat og m.a. íslenskan fisk
já og fyrsta "Bergans" flíkin mín er komin í hús
Reyndar ekki útivistarskel eins og mig vantar, merkilegt að ég bara virðist ekki ætla að detta niður á eða finna það sem hentar mér og er á viðráðanlegu veðri. Sá einn í Lillehammer um daginn sem kostaði aðeins 4000 NOK en ég var að hugsa um að kaupa mér skel á svona ca 2000 NOK og flíkin á að vera regnheld og með góða öndunareiginleika. En það fór allavega þannig í Sverige að ég sá ullarjakka sem ég gjörsamlega féll fyrir og keypti - æi það er stundum þannig bara
þið getið fundið hann hér, í dömuflokknum, undir "teknisk ull" og hann heitir "1912 Myrull Lady Coat" og er svartur - hlakka til að vera í honum í vetur. Fékk reyndar dúnúlpu í afmælisgjöf frá Hauk og strákunum sem þeir áttu eftir að kaupa, þannig að þetta kemur svona í staðin fyrir hana.....bíddu, bíddu.....af hverju er ég að afsaka þessi kaup????skóla-zumba
02. september 2010 klukkan 05:57
Jæja þá eru haustannarkúrsarnir að skríða af stað, einn af öðrum. Þónokkuð er af verkefnum liggja fyrir og svo verða "seminar" sex sinnum á önninni þar sem við eigum að skiptast á að kynna innihald ritrýndra greina og koma af stað umræðu um þær. Ég var svo agalega heppin að vera dregin fyrst þannig að nú fer ég að undirbúa þann fyrirlestur á fullu. Svo er ég nú svo heppin að Seminar 2 verður akkúrat þegar ég verð á Íslandi sem þýðir að ég verð (af því ég kemst ekki að hlusta á fyrirlestrana sem verða þá) að skrifa smá verkefni um þær greinar sem verða til umfjöllunar á því Seminari. Svo eru allavega tvö önnur skilaverkefni sem ég ætla að vera búin með áður en ég fer heim, þannig að það er í nógu að snúast. Þetta þýðir það að ég verð að vera skipulögð og vinna mikið á vikrum dögum því helgarnar reyni ég að halda sem mest fyrir fjölskylduna. Það lítur allavega út fyrir að allar helgar í september eru að einhverju leyti planaðar en það eru tívolíferðir, heimsóknir frá Íslandi, afmæli, meiri maís-týnsla, fermingarbarnamót í Svíþjóð, Oslómaraþon og svona mætti lengi telja.
Við, þrjár íslenskar konur fórum í gærkvöld og prófuðum s.k. ZUMBA í Ås treningsenter - jeminn eini, það var rosalega skemmtilegt, mæli með því að þið prófið en þetta er fínt með öðru. ZUMBA er eiginlega svona leikfimi eða öllu heldur bara spor með salsa ívafi, þar sem maður þarf að hreyfa mjaðmirnar mjög mikið en það er eitthvað sem maður gerir ekki mikið eins og t.d. þegar maður skokkar eða hjólar. Þess vegna er ZUMBA klárlega einu sinni í viku hjá mér, svo er það spinpump tvisvar og skokk tvisvar. Ég held að það sé mjög vænleg blanda.
Við ætlum að skella okkur til Svíþjóðar eftir vinnu í dag, það veitir ekki af að fylla á ísskápinn og bökunarskápinn. Bekkurinn hans Stefáns stendur fyrir kökuloddi á laugardaginn og þá þurfum við að leggja fram eins og tvær kökur, auk þess á elsti heimilismeðlimurinn afmæli um helgina - ætli ég skelli þá ekki í eina "Mississippi mud pie" fyrir hann. Vorum einhverntíman búin að hugsa okkur að skreppa til Gautaborgar um helgina en við frestum því frameftir hausti. Það er spáð fínu veðri um helgina, þannig að það verður eitthvað skemmtilegt brallað, eigum jafnvel von á vinum okkar í heimsókn - tóm gleði
Já, alltaf nóg að gera hér.....yfir og út!

engin mæða hér!
30. ágúst 2010 klukkan 12:19
Jæja þá er ágústblokkinni formlega lokið, prófið afstaðið og ekkert annað að gera nema að finna sér eitthvað að gera það sem eftir lifir dags.
Haustönnin byrjar svo á morgun.
Ég mun því nýta það sem eftir lifir dags til að gera það sem hefur setið á hakanum um nokkurt skeið, þ.e. að þrífa, taka utan af rúmum, þvo þvott Í NÝJU ÞVOTTAVÉLINNI og prjóna. Stefnan er svo að fara í SpinPump tíma í Ås treningsenter seinnipartinn, elda einhvern mat og svo byrjar ný syrpa í uppáhaldssjónvarpsefninu mínu "71°N".
Á morgun byrjar haustönnin formlega og við munum fá gest frá Íslandi um kvöldmatarleytið en Torfi vinur okkar er væntanlegur.
Fleira er ekki í fréttum á þessum gullfallega mánudegi - hver fann upp þetta með að mánudagar væru til mæðu.... ég bara spyr því hann er sko engin mæða hér!!

laugardagur til lesturs, spinnings og nammiáts!!!!
28. ágúst 2010 klukkan 16:11
Á morgun eru akkúrat fjórar vikur í stóra hlaupið í Osló
Við Bríet erum svona eitthvað að dunda við að æfa fyrir þetta. Ég skrái allar æfingarnar mínar á hlaup.com og tja - þetta eru engar maraþonhlauparaæfingar sko, heldur meira svona blanda af hlaupi, göngu og hjóli. Að jafnaði er ég að æfa þrisvar í viku og vegalegndin er ca 20 km (á viku). Verð að bæta aðeins í næstu fjórar vikurnar
Við skelltum okkur til dæmis í spinningtíma í hádeginu í dag, gengum á og frá æfingu. Stefnum á skokk á morgun en ef það verður rigning þá er plan B að fara í treningsenterið í MRL tíma.
Ég er að lesa fyrir próf þessa helgina, já það er próf í ágústblokkarkúrsinum. Próflestur púffff, þá drekk ég ótakmarkað af kaffi, er endalaust að narta í eitthvað og er alveg ómöguleg. Þannig að hreyfingin er alveg nauðsynleg til að brjóta upp daginn. Haukur og strákarnir skruppu og týndu maís í dag, þetta er fyrsta ferðin þetta haustið en stefnan er að fara oftar. Síðan ætla Stefán og Haukur í bíó í kvöld en ætli ég verð ekki að dunda við lestur þegar Þórður verður sofnaður.....jú, ég reikna með því.
Úti hellirignir, þrumur og eldingar.
p.s. keypti bland í poka í dag.......ég veit ég var hætt að borða nammi EN ég á bágt!!!!
Við Bríet erum svona eitthvað að dunda við að æfa fyrir þetta. Ég skrái allar æfingarnar mínar á hlaup.com og tja - þetta eru engar maraþonhlauparaæfingar sko, heldur meira svona blanda af hlaupi, göngu og hjóli. Að jafnaði er ég að æfa þrisvar í viku og vegalegndin er ca 20 km (á viku). Verð að bæta aðeins í næstu fjórar vikurnar
Við skelltum okkur til dæmis í spinningtíma í hádeginu í dag, gengum á og frá æfingu. Stefnum á skokk á morgun en ef það verður rigning þá er plan B að fara í treningsenterið í MRL tíma.Ég er að lesa fyrir próf þessa helgina, já það er próf í ágústblokkarkúrsinum. Próflestur púffff, þá drekk ég ótakmarkað af kaffi, er endalaust að narta í eitthvað og er alveg ómöguleg. Þannig að hreyfingin er alveg nauðsynleg til að brjóta upp daginn. Haukur og strákarnir skruppu og týndu maís í dag, þetta er fyrsta ferðin þetta haustið en stefnan er að fara oftar. Síðan ætla Stefán og Haukur í bíó í kvöld en ætli ég verð ekki að dunda við lestur þegar Þórður verður sofnaður.....jú, ég reikna með því.
Úti hellirignir, þrumur og eldingar.
p.s. keypti bland í poka í dag.......ég veit ég var hætt að borða nammi EN ég á bágt!!!!
yfirlit....
26. ágúst 2010 klukkan 06:17
Tíminn líður hratt á gervihnattaöld!!
Það er ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram, nú eru 13 mánuðir síðan við silgdum á vit ævintýranna - já pælið í því og ekki nema 10-11 mánuðir þangað til við siglum heim. Fyrir ári síðan þótti mér það fjarstæðukennt að við ættum eftir að endast hér úti og tvö ár voru á þeim tíma heil eilífð. En það hefur allt gegnið ótrúlega vel, skólinn er á réttu róli hjá mér, Stefán þrífst vel í sínum skóla og á fullt af vinum, Þórður brillerar í leikskólanum og Haukur hefur það fínt í sinni vinnu - er búinn að prófa fullt af nýjum hlutum og bæta í sinn reynslubanka.
Framundan er stífur vetur hjá mér en að einhverju leyti léttari vetur fyrir strákana og svo ætla ég að vona að snjóþunginn verði ekki eins mikill í vetur og hann var síðasta vetur þannig að álagið á Hauk verði minna.
Flutningur!!
Ég var á fundi í gær hjá SiÅs, það er búið að vera að gera upp blokkirnar hér á Skogveien, nr. 22 er búin og nr. 28 er að klárast, svo verður byrjað á nr. 26 í október og hjá okkur í nr. 24 í apríl....og þá þurfum við að flytja.....svaka stuð semsagt þegar ég verð á lokasprettinum í ritgerðinni jahúúúúú!!!
Gestir!!
Gestagangur verður einhver í vetur. Bebba kemur við þegar hún verður á fundarferð um miðjan sept. Ein vinkona okkar er að gæla við að koma í helgarferð í lok jan. Ein fjölskylda stefnir á að kíkja við seinnipartinn í febrúar (hyttetur yfir helgi+hótel í Osló). Svo veit ég af vinum sem langar að koma einhverntíman en eru ekki búin að ákveða það endanlega. Mamma og pabbi stefna á að koma í júní á næsta ári, veit ekki hvort þau kíkja eitthvað í vetur.
Frí!!
Markmið vetrarins hjá okkur er að plana nokkrar hyttu og skíðaferðir á fríhelgunum hans Hauks. Jól og áramót eru óplönuð, nema að sennilega fer Stefán til Danmerkur um jólin. Ég geri ráð fyrir að páskarnir verði ekki skemmtilegir hjá mér árið 2011 þar sem þeir eru í lok apríl, rétt fyrir ritgerðarskil en sjáum til með það......
EN það er svo langt í þetta allt saman en samt ótrúlega stutt!!!
En fyrst þetta!!!
Næsta mál á dagskrá hjá mér er lestur, fer í próf í vinnusálfræði á mánudaginn, geggjað stuð!!
já og átið á mér!!!
Í gær borðaði ég þetta:
Morgunmatur: Cultura+kornfleks+nektarína
10 kaffi: Nektarína
Hádegismatur: 2 egg, salat + salatsósa+ brauðsneið
Síðdegi: Hrökkbrauðsneið m smjöri+osti
Kvöldmatur: Svínakjöt+grænmeti+kartöflur
Kvöldkaffi: Rauðvínsglas hjá Bríeti

EN það er svo langt í þetta allt saman en samt ótrúlega stutt!!! En fyrst þetta!!!
Næsta mál á dagskrá hjá mér er lestur, fer í próf í vinnusálfræði á mánudaginn, geggjað stuð!!
já og átið á mér!!!
Í gær borðaði ég þetta:
Morgunmatur: Cultura+kornfleks+nektarína
10 kaffi: Nektarína
Hádegismatur: 2 egg, salat + salatsósa+ brauðsneið
Síðdegi: Hrökkbrauðsneið m smjöri+osti
Kvöldmatur: Svínakjöt+grænmeti+kartöflur
Kvöldkaffi: Rauðvínsglas hjá Bríeti
Rauðvínsglasið var nú ekki á dagskrá en eftir að hafa gengið rúmlega 8 km þá bauð Bríet mér í rauðvín um kvöldið og við horfðum á "Hamarinn" á NRK1, ferlega gaman að sjá svona íslenska sjónvarpsþáttaseríu í norska sjónvarpinu 
Amish...sjálfær þróun....
23. ágúst 2010 klukkan 18:22
Byrjaði á þessari færslu í gær 23. ágúst en hafði ekki orku í meira en tvær línur og klára því þetta núna í kvöld (24. ágúst).
Horfði á þátt um Amishfólkið og þá rann upp fyrir mér ljós, það að afla sjálfur þ.e. veiða, tína ber, sveppi, fjallagrös, eiga hænur, býflugnabú, rababara, jarðaber, kálgarð, gróðurhús og svo framvegis er einmitt málið
Langar til að eiga sneisafullt búr af allskonar afurðum t.d. sultum, saft, krydd og te.....
Hef reyndar alveg lifað svona, þ.e. týnt ber og ræktað eitt og annað en eiginlega ómeðvitað - langar til að bæta um betur. Svo er annað sem ég mun hafa í huga það er að það sem ég þarf að verða mér út um sé íslenskt ef sá valkostur er fyrir hendi. Sjálfbærni og samheldni verður mitt mottó....og svo verð ég að muna að vera sjálfri mér samkvæm
Auðvitað get ég ekki gengið alla leið, ég er auðvitað háð bílnum mínum, verð að komast á milli staða, bíllinn er innfluttur - get ekki búið hann til en eldsneytið þar eru valkostir. Fötin mín þar hef ég val, íslensk hönnun, íslenska ullin - love it!!
Þannig að þegar ég flyt heim til Íslands látið ykkur ekki bregða þá er stefnan að ég toppi mig
Ég kann ákaflega vel við hugtakið sjálfbærni og hefur "sustainable development" eða sjálfbær þróun oft verið fleygt fram þegar menn rökræða t.d. um nýtingu lands en á nú við alla aðra hluti einnig.
Hugtakið hefur verið í notkun í rúmlega tuttugu ár og það sem átt er við með sjálfbærri þróun er: "Þróun sem gerir okkur kleift að mæta nútíma þörfum án þess að stefna í voða möguleikum komandi kynslóða á að mæta þörfum sínum." Hverjar eru okkar þarfir og komandi kynslóða? Matur, húsaskjól, menntun, siðferði, já og auðlindir!!! Hugsum okkur að við búum á eyjunni okkar og það kæmi eitthvað uppá í líkingu við stríð, náttúruhamfarir eða annað í þeim dúr, hvað ef við þyrftum að stóla algjörlega á okkur sjálf, getum við það? Ég nefni siðferði því ég er ekki viss um að þróunin þar sé jákvæð fyrir afkomendur okkar.
En þetta var bara svona smá pæl....nenni ekki að skrifa allt pælið - gæti haldið áfram með þetta eftir nokkra daga.....er að fara ð horfa á einn innfluttan afþreyingaþátt í sjónvarpinu.
Góðar stundir.
Horfði á þátt um Amishfólkið og þá rann upp fyrir mér ljós, það að afla sjálfur þ.e. veiða, tína ber, sveppi, fjallagrös, eiga hænur, býflugnabú, rababara, jarðaber, kálgarð, gróðurhús og svo framvegis er einmitt málið
Langar til að eiga sneisafullt búr af allskonar afurðum t.d. sultum, saft, krydd og te..... Hef reyndar alveg lifað svona, þ.e. týnt ber og ræktað eitt og annað en eiginlega ómeðvitað - langar til að bæta um betur. Svo er annað sem ég mun hafa í huga það er að það sem ég þarf að verða mér út um sé íslenskt ef sá valkostur er fyrir hendi. Sjálfbærni og samheldni verður mitt mottó....og svo verð ég að muna að vera sjálfri mér samkvæm
Auðvitað get ég ekki gengið alla leið, ég er auðvitað háð bílnum mínum, verð að komast á milli staða, bíllinn er innfluttur - get ekki búið hann til en eldsneytið þar eru valkostir. Fötin mín þar hef ég val, íslensk hönnun, íslenska ullin - love it!! Þannig að þegar ég flyt heim til Íslands látið ykkur ekki bregða þá er stefnan að ég toppi mig

Ég kann ákaflega vel við hugtakið sjálfbærni og hefur "sustainable development" eða sjálfbær þróun oft verið fleygt fram þegar menn rökræða t.d. um nýtingu lands en á nú við alla aðra hluti einnig.
Hugtakið hefur verið í notkun í rúmlega tuttugu ár og það sem átt er við með sjálfbærri þróun er: "Þróun sem gerir okkur kleift að mæta nútíma þörfum án þess að stefna í voða möguleikum komandi kynslóða á að mæta þörfum sínum." Hverjar eru okkar þarfir og komandi kynslóða? Matur, húsaskjól, menntun, siðferði, já og auðlindir!!! Hugsum okkur að við búum á eyjunni okkar og það kæmi eitthvað uppá í líkingu við stríð, náttúruhamfarir eða annað í þeim dúr, hvað ef við þyrftum að stóla algjörlega á okkur sjálf, getum við það? Ég nefni siðferði því ég er ekki viss um að þróunin þar sé jákvæð fyrir afkomendur okkar.
En þetta var bara svona smá pæl....nenni ekki að skrifa allt pælið - gæti haldið áfram með þetta eftir nokkra daga.....er að fara ð horfa á einn innfluttan afþreyingaþátt í sjónvarpinu.
Góðar stundir.
Hreindýraveiðar í Dovrefjell
23. ágúst 2010 klukkan 10:35
Ég tók lestina héðan frá Åsi um hálf eitt á miðvikudaginn, það byrjaði reyndar ekki vel því henni seinkaði um korter og ég varð svolítið stressuð um hvort ég næði að hlaupa á milli brautarpalla á Oslo S, yfir í lestina sem ég ætlaði að taka upp í Hamar. Þetta tókst allt saman mjög vel, ég hafði með mér glósur sem ég ætlaði að lesa á leiðinni en ég fékk engan frið til þess vegna þess að við hliðina á mér sat gömul kona (72 år gammel Oslo jenta) sem talaði alla leiðina. Þegar ég kom til Hamar tók Oddný á móti mér, hún var ekkert rosalega hress hafði fengið í magann um nóttina og hafði bara verið heima um daginn. Við fórum í vinnuna til Ola í Skogfröverket, fengum okkur smá kaffi þar, skruppum í búð og keyrðum svo af stað. Fyrsta stopp var (Lilleström) Lillehammer (á þetta að vera) þar sem við fengum okkur kaffi, kíktum í Intersport og kíktum á ýmislegt bráðnauðsynlegt og brunuðum svo upp Guðbrandsdalinn. Við beygðum út af veginum við Ringebu og keyrðum yfir Ringebufjellet, komum niður í Atnadalen og keyrðum í norðurátt til Folldal og þaðan í áttina að E6 í Dovre. Við gistum í hyttu fyrstu nóttina. Keyrðum svo áfram til Kongsvoll þar sem við geymdum bílinn og gengum af stað. Það var ansi krefjandi ganga upp miklar brekkur upp í gegn um skóginn og þar fyrir ofan tóku við móar, við tjölduðum í um 1300 m hæð en ég held ég hafi aldrei áður tjaldað í svo mikilli hæð. Fyrsta kvöldið sáum við moskuxahópa og einn hreindýrahóp en því miður var veiðitímabilið ekki byrjað og við gátum ekkert annað gert en að fylgjast með hópnum. Á föstudagsmorgun mátti byrja að veiða, það var ræs kl 4:00 við héldum af stað frá tjaldinu upp úr kl 5:00. Það var þoka og smá rigningarúði. Við gegnum og gengum og gengum, sáum engin dýr, fullt af ummerkjum um þau á svæðinu en ekkert meir. Við lentum í því að vera óþægilega nálægt moskus-kú og vorum fljót að koma okkur í hvarf
Við gengum á einn topp í leiðinni sem var 1700-1800 m.y.s.
Þegar við komum í tjaldið var staðan sú að Oddný var orðin fárveik, henni var ískalt og sjóðheitt á víxl, með höfuðverk og leið mjög illa. Þá var tekin ákvörðun um að laugardagurinn yrði heimferðardagur. Við vorum svo komin niður til Kongsvoll um klukkan tvö á laugardeginum, fengum okkur smá kaffi og meðlæti áður en við keyrðum heim á leið. Bílferðin frá Kongsvoll til Elverum tók rúma þrjá tíma. Ég gisti svo þar og tók rútuna í bítið á sunnudag, var komin hingað heim á Skogveien um hádegi.
Þó þessi ferð hafi ekki farið eins og vonir stóðu til þá var þetta frábær upplifun, landslagið æðislegt, skemmtilegt fólk, flott hreyfing og algjörlega eitthvað sem á eftir að koma sér vel í reynslubankanum
Ég hef núna ferðast um fullt af svæðum í Noregi og ég held að ég hafi séð eitt fallegasta svæði Noregs á heimleiðinni en það er Rondane - ætla klárlega að fara þangað í hyttu við tækifæri. Svo sá ég líka hluta af Pilgrimveien sem væri gaman að fara í áföngum einhverntíman í framtíðinni og Lillehammer!!! Jeminneini hvað það er kósi þar, helgarferð þangað klárlega á dagskrá
og svo væri líka ferlega gaman að ganga á Snöhettu í Dovrefjell sem er sérlega fallegt fjall og var lengi vel talið hæsta fjall Noregs en hún er 2286 m.y.s
Kíkið endilega á myndirnar úr ferðinni, þær liggja hér.
Þegar við komum í tjaldið var staðan sú að Oddný var orðin fárveik, henni var ískalt og sjóðheitt á víxl, með höfuðverk og leið mjög illa. Þá var tekin ákvörðun um að laugardagurinn yrði heimferðardagur. Við vorum svo komin niður til Kongsvoll um klukkan tvö á laugardeginum, fengum okkur smá kaffi og meðlæti áður en við keyrðum heim á leið. Bílferðin frá Kongsvoll til Elverum tók rúma þrjá tíma. Ég gisti svo þar og tók rútuna í bítið á sunnudag, var komin hingað heim á Skogveien um hádegi.
Þó þessi ferð hafi ekki farið eins og vonir stóðu til þá var þetta frábær upplifun, landslagið æðislegt, skemmtilegt fólk, flott hreyfing og algjörlega eitthvað sem á eftir að koma sér vel í reynslubankanum

Ég hef núna ferðast um fullt af svæðum í Noregi og ég held að ég hafi séð eitt fallegasta svæði Noregs á heimleiðinni en það er Rondane - ætla klárlega að fara þangað í hyttu við tækifæri. Svo sá ég líka hluta af Pilgrimveien sem væri gaman að fara í áföngum einhverntíman í framtíðinni og Lillehammer!!! Jeminneini hvað það er kósi þar, helgarferð þangað klárlega á dagskrá
og svo væri líka ferlega gaman að ganga á Snöhettu í Dovrefjell sem er sérlega fallegt fjall og var lengi vel talið hæsta fjall Noregs en hún er 2286 m.y.sKíkið endilega á myndirnar úr ferðinni, þær liggja hér.
Nýtt albúm frá hreindýraveiðum
22. ágúst 2010 klukkan 14:22
Ekkert hreindýr lá í valnum, sáum fullt af dýrum á fimtudagskvöldið, sáum Moskuxa, fengum út úr þessu góða hreyfingu. Blogga meira síðar en hér eru myndir.
Allt klárt! Farin á hreindýraveiðar :)
18. ágúst 2010 klukkan 06:59
Jæja þá er allt klárt, búin að pakka í bakpokann, allskonar föt, hlý og regnheld í bland, ull og aftur ull, þurrmatur, harðfiskur, flatkökur, bollasúpur, smurostur í túbu, kex, hnetur, þurrkaðir ávextir, kakó, te, kaffi, svefnpoki, gsm, gps, kíkir, myndavél, peningar, bolli, skeið, gaffall, hnífur, sólgleraugu, tannbursti, tannkrem, blautþurrkur, klósettpappír...... Já ég held að ég sé með allt það nauðsynlegasta
Öllu þessu hef ég troðið í bakpokann minn og er klár í fjagra daga útiveru.
Svona er planið:
Ég tek lestina héðan inn til Osló S, þaðan tek ég aðra lest til Hamar og býst við að vera þar um klukkan þrjú. Þar hitti ég Ola og Oddný og við keyrum í norðurátt. Við ætlum að koma við í Lillehammer á leiðinni og versla ef eitthvað vantar, síðan höldum við áfram upp í Dovrefjell. Það verður smá lúxus á okkur fyrstu nóttina því við munum gista í hyttu sem vegagerðin á en Oddný vinnur hjá þeim. Síðan í fyrramálið keyrum við áfram í áttina að Snøhetta en það er svæðið sem Oddný fékk leyfi til að skjóta eitt stykki hreindýr á. Við ætlum að byrja á að ganga inn á fjallið og finna góðan stað til að slá upp tjaldinu, síðan er planið að taka daginn og fram í myrkur í að kanna aðstæður. Geri ráð fyrir að það verði þónokkuð mikil ganga á morgun semsagt. Á föstudaginn byrjar svo veiðitímabilið og þá má byrja að skjóta. Það er auðvitað ekkert öruggt að Oddný fái dýr á fyrsta degi og því gerum við ráð fyrir að vera þarna á gangi fram á sunnudag og miðast allt við það. Þegar búið er að ná dýrinu verðum við að gera að því og bera það með okkur í bílinn og ég ætla nú að vona að það verði ekki margir tugir kílómetra en maður má alveg búast við því
Eg reikna svo með að taka rútu eða lest frá Elverum eða Hamar í síðasta lagi á sunnudagskvöldið, nema að Haukur og strákarnir verði komnir á móti okkur en það á allt eftir að koma í ljós.
Svo skal ég blogga um ferðina á mánudaginn
Góðar stundir.
Öllu þessu hef ég troðið í bakpokann minn og er klár í fjagra daga útiveru. Svona er planið: